Forsíða
 Um Baldur
 Myndir
 Gestabók

Vandamenn:
- Védís Hervör
- Dóri
- Boði Loga
- Pets
- Katie
- Gunni Donut
- Uncle Kobbi
- Matti
- Andri Jóns
- Þórey Frænka
- Kantmennirnir
- Uncle Valli Galli
- Árni Torfa
- Árni Friðberg
- Óli Palli Thug
- Gvarinn!!!
- Hildur Bjözz
- A.C. Laessen
- Gísli Bro
- Daníel Tígur
- Steinar Hugi
- Dabbi XDGH
- Bergur XDGH
- F.Orri
- Nóri
- Pálmar NBA
- Pjöllurnar
- Eiturnettar

Synir Skallagríms:
- Orri
- Bragi
- Atli Bolla
- Oddur

Fótóstöff:
- Aldís Páls
- Ari Magg
- APRIL
- Gallerý Alli

Gúdsjitt:
- Batman
- Mbl.is

Füssball:
- Sammarinn
- Forza Juventus
- Lifi Þróttur!
- Soccernet.com
- Fótbolti.net

13. febrúar, 2007

22:08 | Mama Mia



kom heim í gær eftir að hafa heimsótt köben, malmö, sundsvall og stokkhólm. æðisleg ferð og tók ég eitthvað af myndum - reyndar varð myndavélin batteríslaus á miðju ferðalagi og hleðslutækið gleymdist í sæviðarsundinu.

vandamálið með myndalóðsunirnar er að ég er búinn að losa mig við gömlu heimilistölvuna mína og er núna bara með mac lappa sem ég á eftir að henda photoshop inná.
þarf að minnka myndirnar o.þ.h. til að lóðsunin geti átt sér stað en maður fer að redda því.

aðalástæða ferðarinnar var vinnulegs eðlis en einnig fór ég með ara til sundsvall þar sem hann hélt fyrirlestur fyrir sænska ljósmyndafélagið. hann púllaði þann fyrirlestur mjög vel enda aðalnúmerið þarna ásamt albert watson (hann tók m.a. myndina af alfred hitchcock hér fyrir ofan).
læt svo bara myndirnar tala sínu máli þegar þær koma inn.


hér er í lokin er svo mynd sem ég tók um daginn þegar ég var hjá tollstjóranum í rvk..skemmtilegt hjá þesari hressu ríkisstofnun að leyfa okkur skattborgurum að fylgjast svo náið með mötuneytisstemmningunni.











8. febrúar, 2007

04:38 | Símatími

lóðsun á myndalbúmum tefst framyfir helgi útaf utanlandsför.
en í staðinn fáið þið vel sveittan devitos viðskiptavin sem sat í mestu makindum og fékk sér sneið á meðan hann múnaði framan í aðra viðskiptavini.
veit ekki hvort þetta hafi verið einhvers konar gjörningur þar sem hann hefur verið að lýsa skít á e-n tiltekinn málsstað.



og að sjálfsögðu voru myndirnar teknar með nýja iPhone símanum frá apple.









3. febrúar, 2007

17:30 | BK Times

já ég held nú betur...síðan, sem upphaflega var gerð fyrir kosningabaráttu mína í verzló árið 2003, er komin aftur á fullt swing.
vissulega hafa komið nokkrar pásur inn á milli, til að mynda er komið tæpt ár síðan ég bloggaði síðast.
sem þýðir náttúrulega að það er talsverður slatti af myndum sem bíður eftir að verða lóðsað inn á síðuna, hér fyrir neðan er smá preview af því sem kemur inn á næstu dögum.












16:55 | ..........






































































...........................................................................................



20. apríl, 2006

17:48 | Goodbye Mr. Winter


pabbi sendi mér mynd úr símanum sínum af mömmu á harley-inum. og að sjálfsögðu fær hún að fylgja hér með.



páskarnir voru alveg frábærir. afmælisdagurinn sá skemmtilegasti í langan tíma og svo daginn eftir fórum við þorvaldur og sóli uppí bústað og kannski með lóðsi nokkrum myndum frá því við tækifæri.










15. apríl, 2006

20:01 | Born to be wild



"Elsku Baldur, til hamingju með daginn og njóttu hans vel. Við pabbi ætlum að leigja okkur Harley! How about that! ástarkveðja, mamma"

þetta sms fékk ég frá mömmu í gærkvöldi og er þetta svalasta sms sem ég hef fengið. mamma og pabbi eru semsagt að fara krúsa um á harley davidson í usa. spurning hvor þau taki þetta alla leið og fái sér tattú í leiðinni?








14. apríl, 2006

17:59 | Afmæli, tiltekt og naríurnar hennar mömmu

maður bara orðinn 23 ára..ekki frá því að ég hafi fundið eitt grátt hár þegar ég skoðaði mig í speglinum morgun.

en afmælisdagurinn minn er að mestu leyti búinn að fara í tiltekt. sem hlýtur að vera enn eitt dæmið um að ég sé orðinn gamall kall. gísli bróðir flytur í byrjun maí og var ég svona smá að undirbúa það, ekki bara raða draslinu í skúffur og hillur heldur líka henda drasli og fara með í box út í bílskúr.
ég fór t.d. í gegnum kassa sem ég smíðaði í áttunda bekk og hef geymt allskonar dót í. það var fullt af priceless stöffi t.d. einhverjar myndir og ætla ég að skella einhverju á bloggið mitt á næstunni.

en eftir góð afköst í tiltektinni ákvað ég að fara í sund. þegar mun flytja erlendis í framtíðinni, sem ég mun vonandi gera, þá mun ég sakna þess að geti ekki farið í útisundlaug og legið í pottinum tímunum saman. það er svo fresh and so clean einsog outkast myndu orða það.

mamma og pabbi eru núna búin að vera í útlöndum 2 vikur og ég er búinn með allar boxerana mína og hef því gengið í nærbuxum af pabba en hann er af gamla skólanum og eru svona afanærbuxur sem er ekki alveg að gera sig.
ég er búinn að reikna út að ef að þeim seinkar um einn dag sé ég fram á að þurfa að fara naríur af mömmu og þrátt fyrir að birgir haralds hafi einu sinni upplifað það og mælt með þá líst mér ekki á blikuna.

í lokin vil ég óska gulla vini mínum til hamingju með afmælið í dag en þessi mynd var tekin í herberginu mínu stuttu eftir miðnætti í gær hlustandi á johnny cash.






13. apríl, 2006

12:02 | Framtíðin býr á Laugarvatni

ég er búinn að fá nokkuð skemmtileg viðbrögð við tilfinningapistli mínum hér að neðan en þeir sem voru farnir að hafa áhyggjur af mér get ég upplýst að ég er farinn að geta treyst mér að flétta í gegnum íþróttasíður moggans á nýjan leik.

það sem hefur vantað á síðuna er að ég lóðsi inn mynum. nú hafa 2 ný albúm litið dagsins ljóss.


fyrstu eru það myndir frá því ég bauð gömlu stjórninni heimapartý.


og hið síðara er frá eurovison-partýi sem var einnig haldið hér heima og endaði í sveittu eftirpartýi.






7. apríl, 2006

13:04 | Póstmódernískar aðstæður

fyrir nokkrum dögum fór ég í nálastungu og konan sem framkvæmdi hana sagði við mig í lok tímans að ég gæti orðið dáldið tilfinninganæmari eftir meðferðina í nokkra daga.
mér fannst það dáldið fyndið, hélt kannski að ég færi bara uppí vinnu og færi á eitthvert massíft trúnó, svo gott var það samt ekki og hef ekki fundið neinn mun.
svo þegar ég vaknaði í morgun og byrjaði einsog alla morgna að lesa moggann. þegar ég fer á íþróttasíðurnar og sé einhverja mynd af bandarískum körfuboltamanni fagna sigri skallagríms á keflavík og allt í einu verð ég bara massíft klökkur í nokkrar sekúndur.
þetta var væntanlega eitt asnalegasta móment sem ég hef upplifað á þeim tæpu 23 árum sem ég upplifað, enda hef ég mjög takmarkaðan áhuga íslenskum körfubolta og hingað til hefur það aldrei verið hitamál hvort skallagrímsmenn séu að standa sig eða ekki.
þannig ef þið fáið "mér þykir svo vænt um þig" sms eða sjáið mig á trúnó á miðjum degi þá geri ég ráð fyrir að það sé skvt. læknisráði.



6. apríl, 2006

01:46 | Bling

ok, hér er persóna úr teiknimynd sem er nákvæmlega og þá meina ég nákvæmlega einsog einn vinur minn.
ég spyr, hver er maðurinn?





4. apríl, 2006

23:49 | Danni the man

alltaf hef ég haft mikið óbeit á köttum. nokkrir vinir mínir eiga ketti t.d. brandur (vinur minn heitir semsagt brandur - ekki kötturinn) og jói og þegar maður fór til þeirra í gamla daga að horfa á enska boltann var þetta drasl alltaf í kringum mann.
kattaóþólið jókst svo um daginn þegar ég vakna við það að allt í einu kemur einhver þvílíkt vindkviða í gegnum gluggann hjá mér og gardínurnar fara á fullt. þá reis ég snögglega upp og sé þá að vindurinn var ekki svo kröftugur heldur hafði kattarkvikindi hoppað inn um gluggann hjá mér og var að fara gera sig líklegan en sem betur fer drullaðist hann sömu leið útúm gluggann.

kannski að danni kattó hafi ekki verið svo slæmur eftir allt saman? allir í 104 á mínum aldri vita hver danni kattó var - margir þorðu varla að labba einir í hverfinu útaf honum. sagan sagði m.a. að hann hefði leikið sér að því að hryggbrjóta ketti. held samt að einsog með önnur legend hafi sögurnar verið stórlega ýktar.
kom samt ekki í veg fyrir það að ég pissaði einu sinni á mig, fimm ára gamall, þegar hann elti mig, bróður minn og eika bleika.

og talandi um hverfislegend; er maður að heyra rétt!?! er alfreð hall aka alli galli búinn að gifta sig?



3. apríl, 2006

21:54 | Innlit/Útlit

helgin var góð, djammaði hvorugan daginn en vann í staðinn.
fór samt í ríkið á föstudaginn og keypti mér eina rauðvín just in case.
svo á laugardagskvöldið þegar ég var búinn að vera vinnandi í nokkra tíma í tölvunni ákvað ég að gæða mér á smá rauðu.
svo fór ég að pæla í því að ég á mér ekkert uppáhalds rauðvín heldur vel ég bara alltaf flöskuna sem mér finnst flottust í ríkinu, þ.e.a.s lagið á flöskunni og miðinn framan á.
ekki er ég að fara hlusta á einhvern átvr starfsmann segja mér hvað sé þurrt og hvað sé...ég þekki nógu marga sem hafa unnið í ríkinu sem hafa sagt mér að þeir bulli bara einhverja steypu og fólk kokgleypir við því og svo vann ég líka eitt sumar á bensínsstöð og þá var óskrifuð regla að ef einhver sagði eitthvað af bílnum sínum og maður vissi ekki hvað það væri þá bara skella sökinni á að alternotorinn væri að gefa sig.
en ég sagði þetta í einhverju partýi um daginn og fannst viðkomandi svo fyndið að ég skildi fara eftir útlitinu. kannski ágætt að taka það fram að þessi viðkomandi er frekar ljót og kannski spilaði það inní.
nei ég man nú reyndar ekki hver sagði þetta við mig en kannski það sé samhengi í þessari afstöðu minni og öðru.






1. apríl, 2006

23:36 | Aprílgabb aldarinnar

vá hvað þið voruð tekin í fyrsta apríl gabbinu mínu, vissuð bara ekki hvort þið væruð að koma eða fara. edda andrésdóttir og sólveig bergmann á stöð 2 komu með hugmyndina.

nú er ég búinn að vera með bloggþörf í nokkurn tíma en hef ákveðið að taka smá syrpu núna enda frábærasti mánuður ársins kominn, apríl er svo yndislegur. ég ætla að vera duglegur í þessum mánuði og lóðsa myndum hið fyrsta.

svo eru 4 ár síðan ég opnaði APRIL.is, það finnst mér slatti og á þeim tíma voru ekki margar svona ljósmyndasíður. Síðan mun væntanlega fagna afmæli sínu í mánuðinum.









23:07 | 1. apríl 2006

ég er hættur að blogga eftir 3 ár í bransanum.




27. desember, 2005

22:37 | Chelsea Hostel


eyddi jólunum á þingvöllum sem er nice. fékk líka nice jólagjafir en sú besta var flugmiði til new york city en ákveð seinna hvenær ég fari en líklegast í lok janúar. spurning hvort það verði jafngaman og í ágúst 2001 þegar ég var. vonandi.

þessi síða verður áfram í fríi eitthvað fram yfir áramótin.





5. desember, 2005

14:38 | Endurnýjun lífdaga

ég er hættur í hagfræðinni. þannig var mál með vexti að mér og þorvaldi gylfasyni þjóðhagfræðikennara lenti dálítið illa saman og sá ég mig ekki fært til að halda áfam að svo stöddu. ekki vil ég fara nánar út í það núna en það mun allt saman koma í ljós...djók, spaug og glens því þetta er náttúrulega allt saman bull fyrir utan það að ég sé hættur í hagfræði.
ástæðan er kannski frekar sú að ég hef ekki mætt í skólann núna í tvo mánuði, aðallega útaf veikindum og svo einnig útaf áhugaleysi. at the moment sé ég ekki alveg hvernig hagfræðin mun koma mér á þann stað sem hentar mér og nú verður róið á önnur mið. býst við að verða kominn með ca. á tæru um áramótin en er að skoða nokkra hluti.

ég er spenntur yfir jólafríinu. þarf núna að klára ljósmyndaverkefni sem ég tók að mér og svo ætla ég bara að fara vinna í mínum eigin ljósmyndahugmyndum enda alltof langt síðan maður hefur gert það.







30. nóvember, 2005

22:18 | White Trash



árið 2002 kom pabbi einu sinni heim á sunnudagseftirmiðdegi eftir að hafa verið að spila golf. hann spyr mömmu hvort hún geti ekki lagað einhvern fínan mat því að það sé von á gestum. og það sem meira er, það væri von á erlendum gestum.
við öll gapandi hissa, ekki við það að það væru að koma útlendingar í mat til okkar enda hafði það svosem gerst oft áður en að fyrirvarinn væri svo stuttur og hann hefði ekkert talað um það fyrr.

við förum þá að spyrja hann út í þetta og þá hafði það verið þannig að hann hefði lent í einhverju eftirpartýi á gauk á stöng (hann af öllum mönnum) eftir tónleika og þar hefði verið mikið stuð og stemmning. þar hafði hann hitt þennan mann sem var í hljómsveitinni white trash, sem var að spila umrætt kvöld, og pabbi hafði sagt við hann í eftirpartýinu að hann þyrfti nú að bjóða honum í mat og hefur greinilega látið hann fá símann hjá sér.

svo daginn eftir, hringir mr. peter í pabba og spyr hvort það sé ekki bara matur í kvöld. þannig að hann mætti þarna um kvöldið með konuna sína. þau voru eiginlega eins ólík og hægt var að hugsa sér en engu að síður var þetta ljómandi kvöldstund og allir höfðu gaman að.
guð má svo vita hvar peter og white trash eru í dag.


eins ólíkar týpur og hægt var að ímynda sér




00:03 | Creating a carrot

auglýsingafólk og markaðsstjórar geta oft á tíðum verið mjög skondnar týpur. þetta á einnig við um slagorð fyrirtækjanna en hérna eru nokkur sem eru langt í frá að gera góða hluti.

spron - "fyrir allt sem þú ert"
það er eitthvað of mikið við þetta, over the edge, þetta er fokking sparisjóður.

prentsmiðjan oddi - "það þekkja okkur allir"
þetta er eitthvað glatað hrokamúv finnst mér, hvað líka segir það fyrir prentsmiðju að allir þekki þá? ég veit það ekki...

brimborg - "öruggur staður til að vera á"
eitt af því verra, væri annað ef að brimborg væri tryggingarfyrirtæki eða svissneskt bankahólf en þetta er bílasala. meikar engan sense fyrir mér.




25. nóvember, 2005

16:53 | Þrolli

ég held allir hafi einhvern tímann verið á djamminu, þá aðallega í útlöndum, og farið að ljúga einhverja stútfullu um það sjálft.
ég hef allavega gert það og er það oft mjög fyndið og oft heyrir maður einhverjar sögur.
ein grófasta sem ég hef orðið vitni að var þegar ég var að heimsækja antonio vin minn á malaga í sumar þegar við vorum á skemmtistað og hann fer að tala við einhverja stelpu og virðist hún alltaf verða áhugsasamari og áhugasamari.

svo kom hann til baka til mín með númerið hennar og sé að hann var sáttur. svo segir hann mér að hún hafi ekkert verið að taka vel í hann þegar hann labbaði upp að henni og spurði hvaðan hún væri. hún var þá frá cosa rica og ætlaði að ditsa hann en þá brá hann á það ráð að segjast hafa verið síðasta sumar í hjálparstarfi í costa rica og engin tilfinning væri betri en að getað hjálpað þessum litlu körkkum og þá gjörsamlega breyttist attitjútið hennar og endaði allavega með því að hann fékk símanúmerið hennar og ég veit svosem ekki meir. frekar gróft.
getur einhver lagt góða sögu á lóðarskálarnar?

ég er svo búinn að segja myndirnar frá því ég og þorvaldur hoppuðum til amsterdam, er þriðja nýjasta albúmið.




23. nóvember, 2005

12:04 | Djamm


djammes þór halldórsson graður á menntaskólaballi.


gulli garðars graður í menntaskólapartýi





© Baldur Kristjánsson